Maðurinn sem sprengdi koddann !!

Maður nokkur settist að í litlu þorpi og fékk vinnu og gerði annars lítið af sér, en fór eitthvað í pirrurnar á einum "innfæddum" sem byrjaði að bera út allskonar óhróður um þann aðflutta, þetta endaði svo með því að sá aðflutti missti vinnuna og átti ekki nein hús að venda, hann byrjaði að pakka niður fyrir flutning, þá er hringt dyrabjöllunni, þar er kominn sá innfæddi sem rógbar hann, niðurlútur, baðst hann afsökunar á rógburðinum, bauðst til að gera hvað sem væri til að bæta "skaðann", sá aðflutti snerist á hæli, kom til baka med kodda, reif hann í tætlur og sleppti fiðrinu með vindinum um allt þorpið, sagði svo við þann innfædda, "ef þú getur komið tilbaka með hverja einustu fjöður, þá skal ég trúa að þú getir bætt "skaðann". 

Allur áróður, sérlega sá sem studdur er breitt af forráðamönnum okkar, grefur þétt og djúpt um sig í hugum okkar, þegar hann svo er fjármagnaður af bröskurum sem sjá sér gróðahag af að halda lífi í og styðja "síbiljuna" er öll von úti.

Þegar búið er að "berja" inn í hausinn á okkur í áratugi að við séum að "hita" upp jörðina, bræða jöklana, skapa "Extreme" veður í bæði vindum og úrkomu, og valda þurrki og hörmungum annarsstaðar, með því hvernig við lifum og störfum, með bílunum okkar og öðrum samgöngum, að ekki sé talað um matarframleiðslu og annað orkubruðl, þá gerast þær raddir sem sýna algerlega aðrar niðurstöður, æ háværari, en líklega er það samt of seint (ekki hægt að safna fjöðrunum), allavega hvað varðar allann "bisnissisinn sem "klókir" braskarar eru búnir að fá útúr þessu rugli, með góðri hjálp frá huglausum og auðtrúa ráðamönnum.

Öll göldin og skattana sem búið er að koma á í nafni umhverfisverndar og til að hægja á hitun jarðar, allt er bara blöff og lygi það eru nefnilega álíka miklar líkur á því að við séum að breyta veðurfari á jörðinni, eins og ef mús myndi reka við inni í húsinu okkar og hitinn færi uppúr öllu valdi, ef 100.000 mýs myndu gera það, yrðum við bara að opna glugga smástund, ergo "móðir jörð" stillir hitann sjálf óháð brölti manna.

Þessari vitleysu verður ekki snúið við á svipstundu, frekar en fjaðraplokk þess innfædda ekki er mögulegt, en samt er gott að það skuli vera að renna upp fyrir mönnum með vísindalega rökstuddar rannsóknir bak við, að  þetta sé kannski ekki eins og búið er að "berja" inn í hausinn á okkur í áratugi, bara fullseint.

MBKV

KH


mbl.is Hreinsun loftmengunar fjölgar fellibyljum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristján Hilmarsson

Höfundur

Kristján Hilmarsson
Kristján Hilmarsson
Innfæddur Gaflari, búsettur í Noregi síðan 1985
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • hqdefault
  • hqdefault
  • hqdefault
  • hqdefault
  • hqdefault

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband