Búsáhalda hvað.....?

Fjölmiðlar halda áfram bullinu og kalla mótmæli "byltingu" man vel hvernig þetta var blásið upp á feitum fyrirsögnum á sínum tíma, "BÚSÁHALDABYLTING" vissulega mætti fólk og barði potta og pönnur og fékk þar með útrás fyrir svekkelsið eftir hrunið, ólátaskríll fékk að leika sér líka og svo var talað um "byltingu".

En hverju var bylt ? ENGU nefnilega, það eru til ýmisskonar byltingar, þær mest þekktu hafa verið blóðugar og miklar fórnir færðar meðan á stóð, en þvi miður hafa oft verið færðar enn meiri fórnir eftir á, en svo eru til annarskonar byltingar, bylting hugans, bylting sem skeður innanbrjósts hjá hverjum og einum, en samt í samstemmdum tón.

Það hefi getað skeð eftir "búsáhaldaMÓTMÆLIN" á Austurvelli á sínum tíma, en hefur ekki gerst enn, allavega ekki í þeim mæli að skifti máli. 

Ef að búsáhaldamótmæli geta orðið hvati til byltingar hugans, sem við vissulega þurfum nú, þá er það bara aldeilis frábært, en að láta fjölmiðla blekkja sig til að kalla hvatann, byltingu er að tapa fyrirfram, tapa áður en af stað er haldið.

MBKV

KH


mbl.is Búsáhaldabylting í Quebec
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Egill Helgi Lárusson

Það er nú þannig að ef byltingar breyta engu þá er ekki hægt að tala um byltingu heldur valdarán. Íslenska búsáhaldabyltingin var því í raun valdarán Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs og Samfylkingarinnar.

www.umbot.org

Egill Helgi Lárusson, 25.5.2012 kl. 09:44

2 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Satt svo lengi sem það er sett fram svona, en þetta var bara engin bylting, hvorki búsáhalda né önnur, aðeins hávær mótmæli sem hefðu átt að geta leitt til byltingar hugans, gerði það kannsi hjá sumum, en ekki nógu mörgum.

Annars fjallaði innleggið, ef vel er að gáð ;)) um spillandi æsifréttamennsku, sem eyðileggur oftar en ekki.

Takk fyrir innlitið
MBKV

KH

Góð mynd HÉR

Kristján Hilmarsson, 25.5.2012 kl. 11:07

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta var ekkert annað en BÚSÁHALDAVALDARÁN í boði VG (WC), við skulum bara kalla þetta réttu nafni...............

Jóhann Elíasson, 25.5.2012 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristján Hilmarsson

Höfundur

Kristján Hilmarsson
Kristján Hilmarsson
Innfæddur Gaflari, búsettur í Noregi síðan 1985
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • hqdefault
  • hqdefault
  • hqdefault
  • hqdefault
  • hqdefault

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband